flugfréttir
Miklar áhyggjur meðal flugmanna SAS vegna lokun 12/30 brautarinnar í Köben
Frá flugvellinum í Kaupmannahöfn
Flugmenn hjá Scandinavian Airlines (SAS) hafa lýst yfir miklum áhyggjum varðandi fyrirhugaða lokun á 12/30 brautinni á flugvellinum í Kaupmannahöfn og hafa þeir skrifað bréf þar sem þeir lýsa yfir þeim vanda sem þeir sjá fram á að blasir við þeim.
12/30 brautin er einskonar „neyðarbraut“ þeirra Dana en brautin er eingöngu notuð þegar mikið hvassviðri gengur yfir í Kaupmannahöfn
með stífri vestanátt og austanátt en að öllu jöfnu eru tvær aðrar samsíða brautir notaðar í langflestum tilvikum.
Eins og áður hefur komið fram hefur Copenhagen Airport ákveðið að loka 12/30 brautinni þar sem fyrirhugaðar eru framkvæmdir
við framlengingu á flugstöð sem mun teygja sig til suðurs og mun endi byggingarinnar verða staðsettur þar sem 12/30 brautin
liggur í dag.
Í bréfi flugmannanna er stjórnmálamönnum gerð grein fyrir þeim afleiðingum sem lokun brautarinnar mun hafa á starfsemi SAS.
„Við erum ekki mótfallnir því að verið sé að stækka flugvöllinn en áætlunin gerir hinsvegar ráð fyrir framkvæmdum á flugstöð
sem veldur því að til stendur að loka 12/30 brautinni - Það mun hafa miklar afleiðingar sem mun bitna á okkur“, segir m.a. í bréfi
flugmannanna þar stjórnmálamönnum er gerð grein fyrir málinu.
Formlega hefur verið sótt um leyfi til að loka brautinni og verður málið tekið fyrir á þessu ári
„Við höfum nú þegar framvísað tölfræðilegum upplýsingum þar sem útskýrðar eru þær aðstæður sem skapast þegar flugvöllurinn
verður ónothæfur vegna veðurs og vindáttar og þá er búið að gera greinargerð um nothæfni vallarins og hvernig nýtingin
mun skerðast ef 12/30 brautin er ekki til staðar“, segir ennfremur í bréfinu sem skrifað er af Peter Hyldig, yfirflugstjóra hjá SAS, sem undirstrikar að SAS mun ekki samþykkja lokun brautarinnar þegjandi og hljóðalaust.
„Framkvæmdaráætlun vegna stækkun flugstöðvarinnar býður nú samþykkis hjá stjórnvöldum og nú í febrúar er okkur boðið
á fund þar sem okkur verður boðið að tjá okkur um afstöðu okkar til málsins og við munum mæta til þess að minna ykkur á að við sem fyrirtæki störfum undir vissum verkferlum sem takmarkast við krefjandi rekstarumhverfi“.
Mariam Skovfoged, upplýsingarfulltrúi SAS, segir að margir flugmenn hjá félaginu hafi lýst yfir áhyggjum sínum varðandi
lokun brautarinnar og sérstaklega þar sem það mun þýða að það verði meira krefjandi að fljúga til og frá Kaupmannahöfn í slæmu veðri
sem mun valda seinkunum og því að flugferðum verður aflýst.
Skovfoged segir að SAS sé alveg sama þótt að verið sé að stækka flugvöllinn svo lengi sem að starfsemi hans geti haldist
með óbreyttum hætti.
Stjórn Copenhagen Airport sótti formlega um lokun brautarinnar rétt fyrir jól til danskra stjórnvalda en ef samgönguráðuneytið
samþykkir lokunina verður það tekið fyrir á danska þinginu í ár.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.