flugfréttir

Hvítt duft í farþegarými reyndist vera afísingarvökvi í loftræstingu

- Þrír flugliðar fundu fyrir óþægindum

14. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:10

Boeing 737-900 þota Alaska Airlines á flugvellinum í San Jose

Þrjár flugfreyjur og flugþjónar veiktust um borð í Boeing 737 þotu frá Alaska Airlines eftir að þau önduðu að sér dufti sem komst inn í farþegarými vélarinnar sem reyndist vera afísingarefni.

Vélin, sem er af gerðinni Boeing 737-900, var að undirbúa brottför frá Seattle til San Jose í Kaliforníu sl. fimmtudag en kömmu áður en farþegum var hleypt um borð varð áhöfnin vör við hvítt og fíngert duft sem féll niður úr loftræstikerfi í loftklæðningum vélarinnar.

Vélin fór í loftið á áætlun en á leiðinni urðu flugfreyjurnar aftur varar við hvítt duft en skömmu síðar fundu þrír áhafnarmeðlimir fyrir óþægindum.

Flugmennirnir fóru fram á læknisaðstoð við komuna til San Jose og þurfti að flytja eina flugfreyju á sjúkrahús en hún fékk að fara heim eftir skoðun.

Einn farþegi sem var um borð í vélinni sagði að þegar vélin var komin um klukkustund áleiðis hafði flugstjórinn ávarpað farþega í kallkerfið og tilkynnt farþegum að hvíta duftið væri sennilega afísingarefni sem hefði komist inn í farþegarými en hann tók fram að efnið væri ekki skaðlegt.

Vélin var tekin úr umferð við komuna og flaug ekki í tæpa tvo sólarhringa þar sem þrífa þurfti loftræstikerfið.

Staðfest hefur verið að duftið var afísingarvökvi sem hefði komist inn í loftræstikerfið eftir afísingu fyrir brottför og breyst í duft.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga