flugfréttir

Dróni olli ekki skemmdum á nefi á Boeing 737 í lendingu

- Talið að „radome“ hafi gefið sig vegna þrýstings frá loftmótstöðu

14. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:53

Skemmdirnar á nefi vélarinnar sem komu í ljós eftir lendingu

Komið hefur í ljós að dróni olli ekki skemmdum á nefi á farþegaþotu af gerðinni Boeing 737-700 í Mozambique eins og talið var.

Vélin var í aðflugi að flugvellinum í borginni Tete þann 5. janúar sl. þegar flugmenn vélarinnar tilkynntu um högg sem kom utan á stjórnklefann sem talið var hafa verið fjarstýrt flygildi.

Fréttir um atburðinn fóru víða þar sem talið var að dróna hafi verið flogið í veg fyrir vélina en eftir lendingu komu í ljós skemmdir utan á hlífinni sem ver veðurratsjárbúnað sem staðsettur er fremst í nefinu.

Sérfræðingar hjá flugmálayfirvöldum í Mozambique segja engin ummerki benda til þess að vélin hafi orðið fyrir dróna en þeir hafa þess í stað fundið út að orsökina megi rekja til þess að burðarþol á „radome“ hafi gefið sig vegna þrýstings af loftmótstöðu þegar vélin var við það að lenda.

Þá kemur fram að ekkert brak af dróna hafi fundist á þeim stað þar sem vélin var þegar flugmennirnir urðu varir við höggið og er talið nefhlífin hafi gefið sig vegna ófullnægjandi uppsetningu seinast þegar skipt var um hlíf.

Búið er að gera við vélin og er hún aftur komin í umferð hjá LAM Mozambique.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga