flugfréttir

Flugslys: Boeing 747 fraktþota brotlenti í þorpi í Kyrgyztan

- Var í aðflugi að flugvellinum í Bishkek - Yfir 30 látnir

16. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:13

Stélendi vélarinnar ofan á íbúðarhúsum í þorpinu nálægt flugvellinum í Bishkek

Júmbó-fraktþota frá Turkish Airlines af gerðinni Boeing 747-400 fórst í nótt er hún brotlenti í þorpi í aðflugi að Manas-flugvellinum í Bishkek, höfuðborg Kyrgyztan.

Að minnsta kosti 37 eru látnir en tala látinna hefur hækkað hratt en flestir þeirra eru íbúar í þorpinu. Talið er að fimm hafi verið um borð í fraktþotunni og þar af tveir flugmenn en sú tala er enn óstaðfest.

Slysið átti sér stað klukkan 1:31 í nótt að íslenskum tíma en vélin var á leið frá Hong Kong til Istanbúl og var vélin að lenda í Bishkek til að taka meira eldsneyti.

Vélin átti að taka eldsneyti í Bishkek á leið sinni til Istanbúl

Fraktvélin fórst í um 1,9 kílómetra fjarlægð frá flugvellinum og brotlenti í þorpinu Dacha-Suu en 15 hús eyðilöggðust og hylur flak vélarinnar stóran hluta þorpsins.

Ekki er enn vitað um orsök slyssins en talið er að það megi rekja til þoku en mjög slæmt skyggni var er vélin var í aðfluginu að flugvellinum.

Vélin, sem var af gerðinni Boeing 747-412F, var í eigu tyrkneska flugfélagsins MyCargo Airlines en hefur flogið í rúmt ár fyrir fraktdeild Turkish Airlines.

Skráning vélarinnar var TC-MCL og var hún 14 ára gömul, smíðuð árið 2003 en hún var afhent ný til Singapore Airlines Cargo í febrúar árið 2003.

Björgunarstarf stendur enn yfir en búið er að flytja að minnsta kosti 8 manns á sjúkrahús sem eru íbúar í þorpinu.

Boeing hefur sent sérfræðinga af stað til Kyrgyztan til að veita tæknilega aðstoð við rannsókn slyssins í samvinnu við stjórnvöld í landinu.

Flugveðursupplýsingar á Bishkek-flugvelli klukkan 07:30 að staðartíma:
UCFM 160130Z VRB01MPS 0150 R26/0550 FZFG VV001 M09/M10 Q1024 R26/19//60 NOSIG

Flugleið vélarinnar á Flightradar24.com:



Myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga