flugfréttir

Island Air á Hawaii á von á hraðfleygari vélum

- Munu skipta ATR 72-200 út fyrir þrjár nýjar Bombardier Q400

16. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 09:16

Tölvugerð mynd af Bombardier Q400 vél í litum Island Air

Flugfélagið Island Air á Hawaii-eyjum ætlar sér að fara yfir í stærri og hraðskreiðari vélar en félagið hefur ekki haft góða reynslu af þeim ATR skrúfuvélum sem félagið hefur haft í flotanum.

Island air hefur nýlega lagt inn pöntun í þrjár nýjar Bombardier Dash 8 Q400 vélar sem eru bæði hraðfleygari en ATR 72-200 vélar félagsins auk þess sem þær taka fleiri farþega.

Island Air er annað stærsta flugfélagið á Hawaii en þó mun minna en stærsta flugfélagið sem er Hawaiian Airlines en samkeppnin í flugi milli Hawaii-eyja dróst saman eftir að Aloha Airlines hætti starfsemi sinni árið 2008.

Island Air ætlar sér að auka markaðshlutdeild sína með Q400 vélunum en í dag ræður Hawaiian Airlines yfir 84% af markaðnum í flugi innan eyjaklasans.

ATR 72-200 flugvél Island Air með Boeing 767 þotu Hawaiian Airlines í baksýn

Island Air hefur bækistöðvar sínar í Honolulu en félagið flýgur þaðan til Kailua-Kona, Lihue og til Kahului.

Þá ætlar félagið að bæta stundvísi sína sem mældist 88,2 prósent í fyrra en þess má geta að árið 2013 voru 66% af flugferðum félagsins á réttum tíma.

Island Air hafði fyrir nokkrum árum pantað Q400 vélar frá Bombardier en félagið hætti við þá pöntun fyrir nokkrum árum.

Bombardier segir að Q400 vélarnar sé kjörnar fyrir flugrekstur á Hawaii í miklum raka milli eyja sem hafa há fjöll.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga