flugfréttir
Fyrstu þotukaup Widerøe: Velja nýju E2-þotuna frá Embraer
Bombardier Dash-8 Q400 flugvél Widerøe
Norska flugfélagið Widerøe hefur gert samkomulag um sín fyrstu þotukaup en félagið hefur valið næstu kynslóð af E-þotunum frá brasilíska flugvélaframleiðandanum Embraer.
Samkomulagið sem verið er að vinna að samanstendur af þremur Embraer 190-E2 þotum en þær munu koma á markaðinn árið 2018
og verða vélarnar jafnstórar og Embraer E-190 með sætum fyrir 114 farþega.
Samkomulagið gerir ráð fyrir kauprétti á 12 þotum til viðbótar og munu afhendingar hefjast á næsta ári.
Widerøe hefur aðeins haft skrúfuvélar í flota sínum hingað til en floti félagsins samanstendur af 41 Bombardier Dash-vél
en þær eru af gerðinni Dash 8-100, Dash 8-300, Q200 og Q400.
Dash-skrúfuvélarnar hafa komið sér mjög vel fyrir Widerøe á styttri flugleiðum en flugfélagið ætlar sér að færa út kvíarnar en með stærri vélum og mun félagið því koma til með að veita Norwegian og SAS aukna samkeppni.
Fyrsta Embraer E190-E2 þotan í tilraunaflugi
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.