flugfréttir
Júmbó-þota snéri við þar sem „eitthvað“ hafði losnað á vængnum
Séð út á væng á Boeing 747 júmbó-þotu KLM
Júmbó-þota af gerðinni Boeing 747-400 frá KLM Royal Dutch Airlines þurfti í gær að snúa við til Amsterdam þegar í ljós kom að einhver hluti á öðrum væng vélarinnar var laus.
Ekki kemur fram hvað það var sem var laust á vængnum né á hvaða hluta vængjarins en vélin var í 37.000 feta
hæð yfir Egyptalandi, skammt suðvestur af Kaíró, á leið til Nairobi í Kenýa, þegar flugmennirnir snéru við.
Vélin lækkaði flugið niður í 36.000 fet eftir að hún snéri við og lenti á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam fjórum klukkustundum og 20
mínútum síðar.
KLM sagði í yfirlýsingu að vélin hafi verið komin út úr evrópskri lofthelgi þegar í ljós kom að eitthvað á vængnum var laust
sem átti að vera fast og var því ákveðið að snúa við þar sem nauðsynlegt var að láta flugvirkja með viðkomandi þekkingu skoða vandamálið en enginn slíkur var til taks í Nairobi.
Farþegum var gert viðvart og vissu þeir af vandamálinu en um borð voru 376 manns að áhöfninni meðtaldri.
Flugleið vélarinnar á Flightradar24.com
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.