flugfréttir

MH370: Bjóða fundarlaun fyrir malasísku farþegaþotuna

- Ekki verður farið út í nýja leit án nýrra vísbendinga

19. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:48

Í mars verða þrjú ár liðin frá því að malasíska farþegaþotan hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking

Stjórnvöld í Malasíu hafa tilkynnt að þau ætli að veita fundarlaun fyrir þá aðila sem tekst að finna flak malasísku farþegaþotunnar, flug MH370, sem hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking í mars árið 2014.

Stjórnvöld í Ástralíu, Malasíu og í Kína tilkynntu á mánudag að þjóðirnar hafi formlega hætt leitinni að vélinni sem hvarf með dularfullum hætti fyrir næstum 3 árum síðan og hefur seinasta skipið yfirgefið leitarsvæðið í Suður-Indlandshafi.

Eins og staðan er í dag bendir margt til þess að verið sé að skila eftir eitt dularfyllsta hvarf í flugsögunni í lausu lofti og með því verði ekki hægt að fá svar við því hvað varð um vélina með þeim 239 manns sem voru um borð.

Ekki hefur komið fram hvort að önnur leit muni hefjast þrátt fyrir að svo hafi verið nefnt en Abdul Aziz Kaprawi, samgönguráðherra Malasíu, sagði í dag að ríkisstjórn landsins væri opin fyrir því að leyfa einkafyrirtækjum að spreyta sig og standi til að veita fundarlaun ef þeim tekst að finna flugvélina.

Abdul Aziz Kaprawi, samgönguráðherra Malasíu

„Þau munu þurfa að standa fyrir kostnaði að leitinni en við munum veita þeim fundarlaun ef þeim tekst að finna flakið“, segir Abdul Aziz.

Ekki hefur verið nefnt hversu há upphæðin er sem er í boði en þau fyrirtæki sem hafa áhuga á því að taka leitina að sér geta sett sig í samband við yfirvöld í Malasíu.

Ákvörðunin um að hætta leitinni að flugi MH370 hefur vakið upp hörð viðbrögð og reiði meðal ættingja og aðstandenda þeirra sem voru um borð sem krefjast þess að leitinni verði haldið áfram en vísbendingar hafa komið fram um að vélin hafi farið í sjóinn mun norðar en þar sem leitin hefur farið fram hingað til.

„Við vitum að ættingjar og aðstandendur eru ósáttir með að leitinni hafi verið hætt. Við getum ekki haldið áfram á meðan það eru engar nýjar vísbendingar. En ef það eru einhver fyrirtæki sem vilja taka leitina að sér þá því ekki?“, segir Abdul Aziz.

Alls hafa um 30 hlutir fundist sem talið er vera brak af vélinni sem hefur rekið á land við strendur Afríku og á Réunion-eyju í Indlandshafi.

Stjórnvöld í Ástralíu hafa ekki útilokað að ný leit muni hefjast.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga