flugfréttir
Finnair mun hefja flug til Kúbu
Finnair mun hefja flug til Havana frá og með 1. desember nk.
Finnair ætlar að hefja flug til Kúbu en félagið kynnti í gær fjóra nýja áfangastaði og er Kúba ein af þeim.
Flugfélagið finnska mun fljúga til Havana frá Helsinki með nýju Airbus A350-900 vélunum sem félagið hefur fengið afhentar
og verður fyrsta flugið flogið þann 1. desember 2017.
Félagið mun fljúga tvisvar í viku til Havana en um árstíðarbundið flug er að ræða og verður flogið
fram til 23. mars árið 2018.
Þá ætlar félagið að hefja flug til Goa á Indlandi og verður flogið tvisvar í viku með Airbus A330 þotum
og mun það flug hefjast þann 29. nóvember á þessu ári.
Þriðji áfangastaður Finnair er Puerto Vallarta í Mexíkó og mun félagið fljúga þangað einu sinni í viku
með Airbus A350 frá 19. nóvember fram til mars árið 2018.
Fjórði áfangastaðurinn sem Finnair hefur kynnt er Puerto Plata í Dóminíska Lýðveldinu. Félagið mun fljúga
þangað með Airbus A330 og verður flogið einu sinni í viku frá og með 30. nóvember fram til 22. mars árið 2018.
Hafa ekki áhuga á Airbus A350-1000 þotunni
Finnair hefur einnig tilkynnt að félagið hafi ekki áhuga á lengstu Airbus A350 þotunni, A350-1000, og segir félagið þær sögusagnir, sem birtar hafa verið í fjölmiðlum að undanförnu, ekki réttar.
Fram kom að félagið hafi ætla að breyta pöntun sínni í nokkrar af þeim Airbus A350-900 þotum, sem
félagið á eftir að fá afhentar, yfir í Airbus A350-1000.
Talsmaður Finnair segir að félagið eigi eftir að fá tólf A350-900 vélar frá Airbus og verði þær
afhentar samkvæmt áætlun fram til ársins 2023.
„Við eigum von á því að fá fjórar á þessu ári til viðbótar við þær sjö A350-900 vélar sem við höfum fengið
í dag“, segir talsmaður Finnair.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.