flugfréttir

Þriðja Airbus A350-1000 tilraunaþotan bætist við á næstu vikum

22. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:54

Airbus A350-1000 þotan í sínu fyrsta flugi

Þriðja Airbus A350-1000 tilraunaþotan mun á næstunni slást í hóp þeirra tveggja sem framleiddar hafa verið af þessari stærstu útgáfu Airbus A350 þotunnar.

Alls verða þrjár Airbus A350-1000 þotur sem munu taka þátt í flugprófunum en þriðja vélin, sem mun bætast í hópinn á næstu vikum að sögn Airbus, verður hlaðin tilraunabúnaði og ýmsum mælitækjum en sú vél kemur einnig með innréttingum og sætum og verður hún m.a. notuð í leiðarkerfisprófunum.

Vélin mun einnig verða notuð til þess að sannreyna fjarflugseiginleika vélarinnar þar sem gerðar verða tilraunir á vélinni með hámarksfjarlægð frá næsta varaflugvelli sem kallast ETOPS.

Fjarflugsleyfi (ETOPS) er stuðull sem segir til um hversu langt tveggja hreyfla þotur mega fljúga yfir úthöf eða landssvæði frá næsta viðurkennda flugvelli en af öryggisástæðum er krafist þess að vélar sem t.a.m. fara yfir Atlantshafið séu alltaf innan ákveðinnar hámarksfjarlægðar frá næsta flugvelli ef eitthvað skyldi út af bregða.

Airbus gerir ráð fyrir að fá flughæfnisvottun fyrir A350-1000 þotunni í vor en vélin flaug sitt fyrsta flug í nóvember sl. haust.

Verið er að undirbúa samsetningu á fyrstu sölueintökunum á Airbus A350-1000 og er búið að flytja vængi fyrir næstu sex þotur til Toulouse frá verksmiðjunum í Broughton í Wales þar sem vængir vélanna eru framleiddir.

Qatar Airways verður fyrsta flugfélagið í heimi til að fá Airbus A350-1000 afhenta en gert er ráð fyrir að fyrsta vélin verði afhent fyrir lok þessa árs.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga