flugfréttir
Mitsubishi Regional Jet seinkar um tvö ár til viðbótar
- Afhendingar munu hefjast árið 2020 í stað ársins 2018
Mitsubishi Regional Jet (MRJ)
Japanski flugvélaframleiðandinn Mitusbishi Aircraft hefur tilkynnt að afhendingum á nýju Mitsubishi Regional Jet þotunni mun seinka um tvö ár til viðbótar.
Japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) átti að fá fyrstu MRJ90 þotuna afhenta árið 2018 en nú kemur í ljós
að félagið mun ekki fá fyrsta eintakið fyrr en árið 2020.
Heimildarmenn, sem eru kunnugir málinu, segja að ástæðan sé vegna tæknilegra atriða sem þarf að leysa
áður en hægt er að setja vélina á markað og snýst vandamálið um rafkerfi vélarinnar.
Málið varðar staðsetningu á búnaði sem stjórnar rafkerfinu um borð og lítur allt út fyrir að nauðsynlegt verður að breyta
hönnuninni er varðar þau atriði.
Talsmaður ANA segir að vegna þessara fregna ætli félagið sér að hafa einhverjar Boeing 737-500 þotur lengur í flota
dótturfélagsins ANA Wings og þá segir talsmaður Japan Airlines að til greina komi einnig að hafa nokkrar Embraer E-170
þotur lengur í flota J-Air sem er dótturfélag Japan Airlines.
„Ég veit að það er ekki auðvelt verkefni að þróa og smíða fyrstu farþegaþotuna sem Japanir hafa framleitt og ég var meðvitaður
um áhættu á seinkun þegar pöntunin var gerð“, segir Yoshiharu Ueki hjá Japan Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.