flugfréttir
SAS ekki með nein áform um bækistöð utan Skandinavíu
Flugvélar SAS á Gardermoen-flugvellinum í Osló
Scandinavian Airlines (SAS) hefur ekki tekið neina ákvörðun með að opna bækistöð utan Skandinavíu eins og komið hefur fram í dönskum fjölmiðlum.
Talsmaður SAS greindi frá því í viðtali við Berlinske Business að mjög mikil samkeppni væri á markaðnum í fluginu
og yrði flugfélagið skandinavíska að koma til móts við þær breytingar.
Fram kom að möguleg staða væri fyrir SAS að feta í fótspor Norwegian með að setja upp bækistöð í Evrópu þar
sem skattar eru m.a. lægri til samanburðar við Norðurlöndin.
Boeing 737 þota SAS
„Þegar farþegum stendur til boða mjög ódýr fargjöld, og það eru svona mörg flugfélög til að velja úr um, þá verðum við
að endurmeta það hvernig við ætlum að halda áfram í þessari samkeppni“, segir Mariam Skovfoged hjá SAS:
Stjórn SAS ætlar að koma saman fyrir lok mánaðarins til að ræða alla þá möguleika sem eru í stöðunni er varðar rekstur félagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.