flugfréttir
Flugvelli lokað í tæpa tvo mánuði vegna viðgerðar á flugbraut
Frá Nnamdi Azikiwe flugvellinum í Abuja
Fjölmargir aðilar í Nígeríu og þar á meðal fjárfestar hafa lýst yfir áhyggjum sínum yfir því að til stendur að loka flugvellinum í Abuja í sex vikur frá og með byrjun mars vegna viðgerða og endurbóta á flugbraut vallarins.
Nnamdi Azikiwe flugvöllurinn í höfuðborginni Abuja er næst stærsti flugvöllur Nígeríu en á meðan völlurinn verður lokaður
vegna framkvæmda á flugbrautinni þá verður öllu flugi beint til Kaduna City sem er í 250 kílómetra fjarlægð norður af höfuðborginni.
Landleiðin er hinsvegar varasöm þar sem uppreisnarmenn hafa oft rænt vegfarendum og krafist lausnargjalds en nígerísk
stjórnvöld ætla að tryggja öruggur rútusamgöngur frá Kaduna City til Abuja á meðan viðgerð stendur yfir.
Miklar holur og skemmdir hafa reglulega myndast á flugbrautinni
Ekki er víst að flugvöllurinn í Kaduna City geti hinvegar tekið við öllu áætlunarfluginu frá Abuja á meðan þar
sem það gæti gengið erfiðlega fyrir sig en öll pappírsvinna á flugvellinum í þeirri borg og innritun fer fram skriflega
þar sem flugvöllurinn hefur engar tölvur.
Mörg flugfélög hafa kvartað yfir ástandinu á flugbrautinni á flugvellinum í Abuja en Emirates hefur hætt að fljúga þangað og
þá hafa fleiri flugfélög hótað því að hætta flugi til borgarinnar þar sem þau telja að flugbrautin sé mjög varasöm.
Fjölmargir aðilar telja að mjög óskynsamlegt sé að loka flugvelli höfuðborgar landsins og furða sig á því hvers vegna viðgerð fari ekki fram á nóttunni
svo hægt sé að nota brautina á daginn eins og gert hefur verið í öðrum löndum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.