flugfréttir

Rússar íhuga að taka gamlar herflugvélar úr umferð í kjölfar flugslyss

- Margar vélarnar komnar vel til ára sinna

23. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:39

Margar af þeim þotum sem eru í flota rússneska flughersins eru komnar vel til ára sinna

Yfirvöld í Rússlandi segja að mögulega standi til að taka allar þær flugvélar, sem komnar eru til ára sinna, úr flota rússneska hersins í kjölfar flugslyss sem átti sér stað þann 25. desember sl. er þota af gerðinni Tupolev Tu-154 fórst yfir Svartahafi.

Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, hefur farið fram á að gerð verði úttekt á þeim möguleika að taka gamlar flugvélar úr umferð og þá helst flugvélar af gerðinni Tupolev Tu-154 og Tu-134 auk Ilyushin Il-62M þotnanna og skipta þeim út fyrir nýrri vélum.

Talsmaður viðskipta- og iðnaðarráðs Rússlands segir að flugvélarverksmiðjan rússneska, United Aircraft Corporation, gæti útvegað flughernum nýrri flugvélar af gerðinni Tupolev, Sukhoi og Ilyushin.

Nokkur tugi herflugvéla af gerðinni Tupolev og Ilyushin eru í flota rússneska flughersins sem voru framleiddar á áttunda og níunda áratugnum og eru sumar þeirra því orðnar yfir 40 ára gamlar.

Tupolev Tu-154 þotan sem fórst yfir Svartahafi á annan í jólum var á leið frá Sýrlands og var nýfarin í loftið frá rússnesku borginni Sochi þegar hún hrapaði ofan í hafið en 92 voru um borð í vélinni og komst enginn lífs af.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga