flugfréttir

Ekki hvort heldur hvenær ATR kemur með stærri flugvél á markað

- Airbus Group og Leonardo ekki sammála um 100 sæta farþegaflugvél

23. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:18

Frá ATR verksmiðjunum

Möguleiki er á því að fransk-ítalska flugvélaverksmiðjan ATR muni skoða þann kost að hefja þróun á enn stærri farþegaflugvél en stærsta útgáfan sem framleidd er í dag er ATR 72 sem tekur um 70 farþega.

Airbus Group og Leonardo eiga bæði helmingshlut í ATR en eigendunum ber þó ekki saman um hvort að arðbært væri að setja á markað stærri ATR flugvél eða einblína á þær ATR vélar sem framleiddar eru í dag.

Christian Scherer, framkvæmdarstjóri ATR, segir að það sé ekki spurning um hvort stærri flugvél verði framleidd heldur hvenær en slík vél gæti tekið allt að 100 farþega.

Scherer segir að það liggur þó ekkert á með að taka ákvörðun um stærri ATR flugvél á næstunni. Scherer var gerður að framkvæmdarstjóra fyrirtækisins í nóvember 2016 en áður starfaði hann hjá Airbus.

Fyrirrennari hans, Patrick de Castelbajac, sagði í fyrra að Airbus hefði áhuga á að koma með endurbættari útgáfu á markaðinn af ATR 42 og 72 vélunum með nýrri skrúfuhreyflum á meðan ítalska móðurfyrirtækið, Leonardo, vildi setja á markað nýja 100 sæta flugvél.

Yfirmenn Airbus Group og Leonardo segjast hafa átt í óformlegum viðræðum um möguleika á stærri ATR flugvél án neinnar sérstakrar niðurstöðu í málinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga