flugfréttir

Keflavíkurflugvöllur orðinn sá 5. stærsti á Norðurlöndunum

- Aðeins Köben, Stokkhólmur, Osló og Helsinki eru stærri en KEF

23. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:45

Keflavíkurflugvöllur hefur stokkið upp um heil 2 sæti á einu ári yfir stærstu flugvelli Norðurlandanna

Hvergi á Norðurlöndunum varð eins mikil farþegafjölgun milli ára líkt og á Keflavíkurflugvelli en fjölgunin er fjórfalt meiri m.a.v þann norræna flugvöll sem sá næstmestu farþegafjölgunina.

Keflavíkurflugvöllur er núna 5. stærsti flugvöllurinn á Norðurlöndum en um gríðarlegt stökk er að ræða þar sem í ársbyrjun 2016 kom í ljós að hann var 7. stærsti flugvöllurinn árið 2015 á lista yfir þá stærstu á Norðurlöndum og í 10. sæti árið 2014.

Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 40% árið 2016 m.a.v. árið á undan en næstmest varð fjölgun farþega á Skvasta-flugvellinum nálægt Stokkhólmi þar sem farþegum fjölgaði um 11 prósent í fyrra.

Á einu ári hefur Keflavíkurflugvöllur tekið fram úr Landvatter-flugvellinum í Gautaborg og Flestland-flugvellinum í Bergen en báðir vellirnir voru stærri en KEF árið 2015.

Í 1. sæti yfir stærstu flugvelli Norðurlanda er Kaupmannaflugvöllurinn með 29 milljónir farþega á ári sem er 9% aukning frá því árið 2015, í 2. sæti kemur Gardermoen í Osló með 25,7 milljónir og þá er Arlanda-flugvöllurinn í Stokkhólmi í 3. sæti með 24,7 milljónir farþega en þessir þrír flugvellir voru í sömu sætum árið 2015.

Það á einnig við Vantaa-flugvöllinn í Helsinki sem var sá 4. stærsti árið 2016 með 17,1 milljón farþega en á eftir honum kemur Keflavíkurflugvöllur með 6,8 milljón farþega.

Minnst var farþegafjölgunin á Bromma-flugvellinum í Stokkhólmi þar sem farþegum fjölgaði aðeins um 0,7% en á botninum kom Moss-flugvöllurinn (Rygge) nálægt Osló þar sem farþegum fækkaði um heil 20% milli ára.

Isavia gerir ráð fyrir að að 8,7 milljón farþega muni fara um Keflavíkurflugvöll á þessu ári en ekki eru miklar líkur á því að KEF muni hækka sig um sæti á þessu ári þar sem 17 milljónir farþega fara árlega um flugvöllinn í 4. sæti sem er Vantaa í Helsinki.

Listinn í heild sinni yfir 30. stærstu flugvelina á Norðurlöndunum







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga