flugfréttir

Berlin Brandenburg opnar ekki árið 2017

- Verður draugaflugvöllur í að minnsta kosti ár til viðbótar

24. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:11

Brandenburg er einn stærsti draugaflugvöllur Evrópu

Stjórn Brandenburg-flugvallarins í Berlín hefur tilkynnt að flugvöllurinn mun ekki opna árið 2017 en nú þegar er búið að fresta opnun vallarins nokkrum sinnum en upphaflega stóð til að taka hann í notkun árið 2010.

Milli jóla og nýárs fóru af stað sögusagnir um að von væri á tilkynningu um enn frekar seinkun á opnun vallarins en sl. laugardag staðfesti stjórn Berlin Brandeburg Airport um enn aðra seinkunina.

Að þessu sinni er seinkunin tilkomin vegna galla í rafkerfi sem ekki er búið að ná að laga auk þess sem stjórnkerfi sem opnar þær 1.200 hurðar í flugstöðinni, sem opnast sjálfkrafa, virkar ekki en slíkt getur reynst hættulegt af öryggisástæðum en upp kemur eldsvoði.

Þá er einnig enn verið að laga galla í vatnslögnum sem tengjast vatnsúðarakerfi í byggingunni sem á að fara í gang við eldsvoða.

Upphaflega átti Brandenburg-flugvöllurinn að opna árið 2010

Karsten Mühlenfeld, verkefnastjóri, segir að eftir ítarlega úttekt þá var það mat manna að of mikil áhætta þótti að freista þess að opna Brandenburg-flugvöllinn á þessu ári en ný opnunardagsetning er núna árið 2018.

Framkvæmdir við Brandenburg-flugvöll hófust árið 2006 og stóð til að opna flugvöllinn árið 2010 og var upphaflega gert ráð fyrir að flugvöllurinn myndi kosta um 245 milljarða króna en kostnaðurinn hefur þrefaldast og hafa framkvæmdirnar nú þegar kostað þýska ríkið tæpa 800 milljarða króna.

Brandenburg-flugvellinum er ætlað að leysa af hólmi þá tvo flugvelli sem þjóna Berlín í dag sem eru Schönefeld og Tegel.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga