flugfréttir

Dublin kemur til greina sem fyrsta bækistöð WOW air utan Íslands

- Þrír flugvellir til skoðunar - Ákvörðun verður tekin fyrir sumarið

25. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:31

Airbus-þotur WOW air í Keflavík

WOW air mun taka ákvörðun fyrir sumarið um hvort að Dublin verði gerð að fyrstu bækistöð flugfélagsins utan Íslands en tveir aðrir flugvellir koma einnig til greina.

Þetta kemur fram í viðtali við Skúla Mogensen, stofnanda WOW air, sem birtist í írska fjölmiðlinum Irish Independent en félagið hefur sl. ár verið að skoða möguleika á því að opna starfsstöð á flugvelli erlendis og vera með flugvélar staðsettar þar sem fljúga til annarra áfangastaða óháð Keflavík.

Skúli tekur fram í viðtalinu að þrír flugvellir í Evrópu komi sterklega til greina sem verið er að skoða en Dublin er meðal þeirra.

Skúli Mogensen, stofnandi WOW air

Skúli sér fyrir sér að WOW air myndi byrja með að staðsetja tvær til þrjár þotur á fyrsta flugvellinum utan Íslands og innan 5 ára gæti farið svo að félagið myndi gera út frá öðrum flugvelli og væri þá komið með tvær bækistöðvar utan Evrópu.

Myndu þurfa írskt flugrekstrarleyfi

WOW air myndi þurfa að sækja um írskt flugrekstarleyfi til að setja á fót bækistöð í Dublin og yrði flogið frá höfuðborginni írsku beint yfir Atlantshafið til Norður-Ameríku.

„Dublin kemur til greina. Ég vona að við tökum ákvörðun fyrir sumarið og vonandi væri þá hægt að hefjast handa á næsta ári“, segir Skúli sem tekur fram að einn af þeim kostum sem Dublin býr yfir sé nálægðin við Íslands sem sé rekstarlega hentugt. Ekki kemur fram hverjir hinir tveir flugvellirnir eru.

„Það er samt farið að verða þröngt á þing á flugvellinum í Dublin og það er það sama upp á teningnum á Íslandi þar sem Keflavíkurflugvöllur er að fyllast en það er ein ástæða þess að WOW air er að leita utan landsteinanna“, segir Skúli í viðtalinu við Irish Independent.

WOW air byrjaði að fljúga til Írlands fyrir tveimur árum síðan með flugi til Dublin en félagið mun bæta öðrum írskum áfangastaði við í vor þegar byrjað verður að fljúga til Cork.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga