flugfréttir
Bahama mun stjórna sinni eigin lofthelgi á næstunni
- Flugleiðsaga hefur sl. ár verið í umsjón Bandaríkjamanna
Boeing 737 þota Bahamasair á flugvellinum í Nassau
Yfirvöld á Bahama eru byrjuð að leggja drög að því að taka yfir flugumferðstjórnun í kringum eyjarnar en lofthelginni er í dag stjórnað af bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA).
Forsetisráðherra Bahama-eyja segir að stjórnvöld á eyjunum hafi náð samkomulagi við Bandaríkin um að þær flugvélar, sem skráðar
eru á eyjunum, verði undanþegin flugleiðsögugjöldum sem er fyrsta skrefið í sjálfstæði eyjanna yfir lofthelginni.
Samkomulagið mun einnig gefa Bahama-eyjum leyfi til að innheimta gjöld fyrir flugleiðsögu en ekki er vitað hvenær breytingin
mun taka í gildi.
„Við höfum náð töluverðum árangri með þessu samkomulagi sem gerir ráð fyrir að við munum stjórna okkar loftrými og næsta skref er að sækja formlega um breytingu á þessu fyrirkomulagi til Alþjóðasamtaka flugfélaganna (ICAO) sem mun þá viðurkenna
flugleiðsögusvæði Bahama“, segir Perry Christie, forsetisráðherra Bahama.
Þrátt fyrir að Bahama hafi fengið sjálfstæði frá Bretum árið 1973 þá hefur lofthelgin alla götur síðan verið undir stjórn
bandarískra flugmálayfirvalda (FAA).
Flugfélög á Bahama munu koma til með að spara sér töluverðar fjárhæðir þegar eyjarnar munu taka yfir stjórninni á flugumferðarsvæðinu
en t.a.m. þá þurfti flugfélagið Bahamasair að greiða 115 milljónir króna í flugleiðsögugjöld sl. 3 ár.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.