flugfréttir
Ryanair: „Of margir farþegar mæta með hálfa búslóðina í handfarangri“
Boeing 737 þota Ryanair
Svo gæti farið að Ryanair muni herða enn meira á reglum um handfarangur en Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri félagsins, hótar því að fella niður handfarangursheimild upp á tvær töskur.
Í október árið 2013 ákvað Ryanair að leyfa farþegum að taka með sér eina smærri handfarangurstösku til viðbótar með sér um borð
sem var liður í aðgerðum til að bæta ímynd sína gagnvart viðskiptavinum sínum.
Svo virðist sem að Ryanair hafi fengið það í bakið þar sem farþegar eru í aukni mæli að mæta með tvær fullar handfarangurstöskur
sem þeir troða í eins mikið og hægt er að sögn framkvæmdarstjórans.
Slíkt hefur ollið seinkunum þar sem flugfreyjur og flugþjónar eiga í vandræðum með að koma því fyrir í handfarangursgeymslum.
„Við lendum í vandræðum við landganginn þar sem of margir farþegar mæta um borð með hálfa búslóðina í þessum tveimur
töskum í stað þess að koma með einn venjulegan handfarangur og eina litla tösku eins og ætlast er til“, segir O´Leary.
Talsmaður Ryanair segir að mögulega muni félagið endurskoða reglur um handfarangur þar sem þetta sé farið að valda
seinkun á brottför.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.