flugfréttir
Indverjar bjóða Qatar Airways að stofna flugfélag á Indlandi
Airbus A320neo þota Qatar Airways
Flugmálayfirvöld á Indlandi hafa beðið Qatar Airways um að stofna flugfélag á Indlandi í þeim tilgangi að taka þátt í auknum uppgangi í innanlandsfluginu í landinu.
Farþegafjöldi í innanlandsfluginu á Indlandi rauf næstum því 100 millljóna farþegamúrinn árið 2016 og stefnir í að Indland
verði með þriðja stærsta innanlandsflugsmarkað í heimi árið 2026.
Samkvæmt heimildarmanni sem er kunnugur málinu þá er verið að bjóða Qatar Airways að stofna annaðhvort nýtt flugfélag
á Indlandi eða fjárfesta í einhverjum af þeim indversku flugfélögum sem sinna innanlandsflugi í landinu.
Flugfélögin fyrir botni Persaflóa hafa verið að fjárfesta mikið í erlendum flugfélögum en t.a.m. þá hefur Etihad Airways keypt 24%
hlut í Jet Airways.
Rajiv Nayan Choubey, ritari flugmálaráðuneytis Indlands, staðfestir að ráðuneytið hafi rætt við ríkisstjórn Qatar um þann möguleika
á að stofna flugfélag á Indlandi en þá bar þetta einnig á góma í viðræðum sem indversk stjórnvöld áttu við Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóra Qatar Airways, á dögunum.
Sambærilegar viðræður hafa farið fram við stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en Emirates vill frekar fá
úthlutað fleiri flugleiðum til Indlands í stað þess að fjárfesta í innanlandsfluginu á Indlandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.