flugfréttir

WOW air stefnir á flug til Ísrael

- Sækja um leyfi fyrir sex flugferðum í viku til Ben Gurion í Tel Aviv

27. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:44

Tölvugerð mynd af Airbus A330 breiðþotu WOW air í flugtaki í Tel Aviv

WOW air hefur sótt um leyfi ti flugmálayfirvalda í Ísrael til að hefja áætlunarflug til Tel Aviv.

Samkvæmt fjölmiðlum í Ísrael hefur WOW air sótt um leyfi fyrir sex vikulegum flugferðum til Ben Gurion flugvallarins í höfuðborg landsins, Tel Aviv.

Samkvæmt frétt Jewish Business News kemur fram að stefnt sé að því að hefja flug frá Keflavík til Ísrael í júní í sumar en ekki hefur komið nein opinber yfirlýsing frá WOW air varðandi flugið.

Fram kemur að WOW air ætli að bjóða Ísraelum upp á ódýr fargjöld til Bandaríkjanna með viðkomu á Íslandi en mjög sterk tengsl eru milli landanna tveggja.

WOW air myndi með flugi til Tel Aviv etja kappi við bæði Delta Air Lines og United á flugi til Bandaríkjanna en alls eru fjögur flugfélög sem fljúga milli Ísrael og Norður-Ameríku.

Þau eru Air Canada sem flýgur til Toronto, Delta (New York JFK), El Al Israel Airlines, sem flýgur til Boston, Los Angeles, New York, Newark og Toronto og þá flýgur United Airlines frá Ísrael til Newark og San Francisco.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga