flugfréttir
Norwegian skrefi nær því að hefja innanlandsflug í Argentínu
- Norwegian Air Argentina hefur verið stofnað
Norwegian ætlar að byrja með 16 þotur í innanlandsflugi í Argentínu
Norwegian vinnur nú hörðum höndum að því að stofna dótturfélag í Argentínu en félagið tilkynnti í fyrra að verið væri að skoða möguleika á að hefja innanlandsflug í Suður-Ameríku.
Norwegian hefur nú formlega stofnað eignarhaldsfélag utan um rekstur Norwegian Air Argentina sem er skrásett
í Argentínu en fyrirtækið var stofnað þann 25. janúar sl.
Þrír stjórnarmeðlimir eru stjórn Norwegian Air Argentina en þeir starfa allir hjá lögfræðistofu í Argentínu og munu þeir
stýra teymi sem mun koma að því að setja upp leiðarkerfi fyrir Norwegian í Argentínu.
Þessar fregnir hafa verið þyrnir í augum nokkurra flugfélaga í Suður-Ameríku sem eru ekki sátt við að norskt lágfargjaldafélag
sé að koma inn á markaðinn m.a.v. þá velgengni sem félagið hefur notið í Evrópu.
Norwegian ætlar sér að hefja flugrekstur með allt að 16 þotur í Argentínu, sex af gerðinni Boeing 737-800 og tíu Boeing 737 MAX 8
þotur sem verða staðsettar í tveimur til þremur borgum í landinu.
Meðal þeirra borga sem Norwegian ætlar að byrja að fljúga á milli eru Buenos Aires, Córdoba og Mendoza.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.