flugfréttir

Lengsta flug milli Hawaii-eyja verður 58 mínútna langt

- Jafnlangt flug frá Kona til Lihue og frá Keflavík til Þórshafnar

27. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:50

Boeing 717 þota Hawaiian Airlines á flugvellinum í Kona

Hawaiian Airlines ætlar að hefja lengsta flug sem flogið hefur verið milli Hawaii-eyja sem er flug milli flugvallanna í Lihue og Kona.

Lihue er staðsett á eyjunni Kauai sem liggur lengst til vesturs í eyjaklasanum af þeim eyjum sem hafa flugvöll en engann flugvöll er að finna á Niihau sem er enn vestar.

Kailua-Kona er staðsett á Hawaii-eyju sem er stærsta eyjan, staðsett lengst til austurs, en þeir farþegar sem hafa hingað til flogið milli þessara staða hafa þurft að millilenda í Honolulu á leiðinni.

Fjarlægðin milli Kona og Lihue er þó aðeins 423 kílómetrar eða 55 kílómetrum lengri en lengsta flugið milli eyjanna sem í dag er flugleiðinni milli Hilo og Honolulu sem er 348 kílómetra löng sem er álíka langt og flug milli Reykjavíkur og Egilsstaða.

Bæði Kauai og Hawaii eru mjög vel tengdar við meginlands Bandaríkjanna en Delta Air Lines, American Airlines, Alaska Airlines, United Airlines og WestJet fljúga t.a.m. til Lihue á Kaui frá 10 áfangastöðum á meginlandi Bandaríkjanna og í Kanada.

Þá fljúga sömu flugfélögin einnig til Kona frá 12 áfangastöðum í Norður-Ameríku.

Hawaiian Airlines mun hefja flug milli Kona og Lihue þann 12. mars og er flugtíminn þar á milli 58 mínútur en flogið verður með Boeing 717.

Leiðarkerfi Hawaiian Airlines milli eyjanna







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga