flugfréttir
Boeing fær þriðju pöntunina í KC-46 eldsneytisvélina
Bandaríski flugherinn á von á 179 eldsneytisvélum af gerðinni Boeing KC-46
Boeing hefur fengið þriðju pöntunina í KC-46 eldsneytisflugvélina frá bandaríska flughernum en vélin hefur verið í þróun og smíðum fyrir bandaríkjaher sl. ár.
Flugherinn hefur lagt inn pöntun í fimmtán eintök til viðbótar og er pöntunin metin á 243 milljarða króna en bandaríkjaher
á von á því að fá alls 179 eintök af Boeing KC-46 eldsneytisvélinni.
Bandaríski flugherinn mun fá fyrstu vélarnar afhentar síðar á þessu ári og verða þær fyrstu afhentar til McConnell Air Force
flugvallarins í Wichita í Kansas.
Fjórar tilraunavélar hafa nú á tveimur árum flogið tæpa 1,500 flugtíma í flugprófunum en Boeing KC-46 flaug sitt fyrsta flug árið 2015.
KC-46 er framleidd í Everett en Spirit AeroSystems í Wichita framleiðir fremri skrokk vélarinnar, hreyflafestingar, hreyflahlífar og vængfleti.
Með eldsneytsivélinni mun bandaríski flugherinn geta aukið flugþol þeirra véla sem taka þátt í hernaðaráætlunum á svæðum á borð við í kringum Kyrrahafið og við austurhluta Asíu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.