flugfréttir

Arik Air í Nígeríu hættir við pöntun sína í Boeing 747-8

- Skipta pöntuninni út fyrir Dreamliner

29. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:47

Arik Air pantaði tvær Boeing 747-8 þotur árið 2011 en félagið hefur nú hætt við þá pöntun

Boeing hefur misst pöntun í nýju júmbó-þotuna en nígeríska flugfélagið Arik Air hefur hætt við pöntun sína í tvær Boeing 747-8 þotur og skipt henni út fyrir Dreamliner-vélar af gerðinni Boeing 787-9.

Þetta þýðir að Boeing mun smíða enn færri eintök af Boeing 747-8 enn áætlarnir gerðu ráð fyrir en Boeing hefur frá upphafi fengið pantanir í 136 júmbó-þotur af gerðinni Boeing 747-8 og er búið að afhenda 110 vélar og á þá eftir að afhenda 26 þotur til viðbótar.

Boeing hefur lækkað framleiðsluhraðann á Boeing 747-8 niður í eina þotu á tveimur mánuðum en United Parcel Service (UPS) er eina flugfélagið sem á eftir að fá sínar vélar afhentar og þá er enn verið að afhenda vélar til Nippon Cargo Airlines, Korean Air, Silk Way Airlines og Air Bridge Cargo.

Heimildarmaður sem er kunnugur Arik Air segir að Boeing 787-9 sé mun skynsamlegri kostur fyrir félagið heldur en júmbó-þotan og þá sérstaklega í áætlunarflugi frá Nígeríu til Bretlands og Bandaríkjanna.

Arik Air var eina flugfélagið sem átti eftir að fá Boeing 747-8 afhentar til farþegaflugs en helmingi fleiri eintök hafa verið pöntuð af fraktútgáfunni, Boeing 747-8F.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga