flugfréttir
Reyndi að opna útgang á risaþotu Qantas í 39.000 feta hæð
Dyrnar á risaþotunni Airbus A380
Farþegi sem flaug með ástralska flugfélaginu Qantas á yfir höfðu sér allt að 10 ára fangelsi fyrir að hafa reynt að opna útgang um borð í Airbus A380 risaþotu í 39.000 feta hæð yfir Kyrrahafi á leiðinni frá Los Angeles til Sydney.
Atvikið átti sér stað þann 17. janúar sl. og hafði vélin verið á flugi í 13 klukkustundir þegar karlmaður um borð gerði
sér lítið fyrir og stóð upp og reyndi að opna útganginn þegar vélin átti um klukkustund eftir til Sydney.
Flugfreyjur og flugþjónar um borð urðu vitni að uppátæki mannsins og stöðvuðu hann og fylgdu honum aftur til sætis
og sátu hjá honum það sem eftir var flugsins.
Flugstjórinn ræddi við manninn eftir lendingu og fylgdi lögregla honum frá borði en maðurinn er 49 ára Bandaríkjamaður
og heitir Manuel Gonzalez.
Ekki er hægt að opna neyðarútgang í 39.000 feta hæð
Gonzalez hefur verið ákærður fyrir að stofna öryggi vélarinnar og farþega í hættu en dómur í málinu hefur ekki
enn verið kveðinn upp en dómari á eftir að komast að því hvort að hræðsla hafi valdið því að hann reyndi að opna
dyrnar eða hvort hann hafi gert þetta af ásetningi.
Gonzalez hefði þrátt fyrir þetta aldrei tekist að opnar dyrnar þar sem gríðarlegur þrýstingsmunur er á farþegarýminu
og andrúmsloftinu fyrir utan sem jafngildir því að allt að 11 tonn hvíli á hverjum útgangi.
Reynt var að leysa Gonzalez úr varðhaldi gegn tryggingu en því var hafnað og verður hann í fangelesi í tvo mánuði
þar til réttað verður aftur í máli hans.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.