flugfréttir

Múslimabann Trumps hefur áhrif á vaktir áhafna hjá Emirates

- Þurfa að hagræða vöktum hjá einhverjum flugmönnum og flugliðum

30. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:05

Flugfreyjur Emirates

Emirates hefur neyðst til þess að breyta vöktum hjá nokkrum flugmönnum og flugliðum sem áttu að fljúga til Bandaríkjanna á næstu dögum í kjölfar nýrra laga sem Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur komið á fót varðandi vegabréfsáritun farþega sem koma frá alls sex löndum í heiminum þar sem múslimar eru í meirihluta.

Donald Trump kynnti fyrir helgi ný lög sem banna vegabréfaáritanir fólks sem kemur frá Íran, Írak, Súdan, Sómalíu, Sýrlandi, Jemen og frá Líbýu en lögin tóku strax í gildi og hafa þau skapað mikil öngþveiti á fjölmörgum flugvöllum um helgina meðal farþega sem hafa orðið strandaglópar.

Yfir 23.000 flugfreyjur og flugþjónar starfa hjá Emirates, sem er eitt stærsta flugfélag heims, og 4.000 flugmenn en fjöldi þeirra eru múslimar þrátt fyrir að Sameinuðu arabísku furstadæmin eru ekki á listanum.

Donald Trump undirritaði ný lög sem banna íbúum sex landa að koma til
Bandaríkjanna

Hinsvegar ná nýju lögin bæði til farþega og áhafna hjá flugfélögum en margir áhafnameðlimir hjá Emirates koma frá löndunum sex en samkvæmt Emirates eru þeir þó í miklum minnihluta.

„Við höfum náð að gera viðeigandi ráðstafanir og breyta vöktum meðal áhafna til að uppfylla þessi skilyrði“, segir talsmaður Emirates sem tekur fram að breytingarnar muni aðeins hafa minniháttar áhrif fyrst um sinn.

Emirates hefur boðið þeim farþegum, sem eiga bókað flug til Bandaríkjanna með félaginu og eru frá löndunum sex, endurgreiðslu.

Þá er svipaða sögu að segja hjá Etihad Airways sem hefur einnig þurft að hagræða einhverjum vöktum hjá félaginu og boðist til að endurgreiða farþegum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga