flugfréttir
Boeing 737 frakflugvél fór út af í lendingu í Kólumbíu
Flugvélin utan brautar á flugvellinum í Leticia á laugardag
Fraktflugvél af gerðinni Boeing 737-300F frá kólumbíska flugfélaginu Aercaribe fór út af braut í lendingu á flugvellinum í borginni Leticia í Kólumbíu á laugardag.
Vélin var að lenda á Alfredu Vásquez Cobo flugvellinum í borginni eftir flug frá höfuðborginni Bogota þegar
hún rann út af braut og endaði út á graslendi með þeim afleiðingum að hjólastell vélarinnar féllu saman.
Fjórir voru í áhöfn um borð og sakað engann en vélin varð fyrir skemmdum á skrokk, hjólabúnaði og hreyflum.
Fjarlægja þurfti eldsneyti úr tönkum vélarinnar áður en hafist var handa við að ná vélinni upp á steypt yfirlag brautarinnar.
Orsök atviksins eru ókunn en flugmálayfirvöld í Kólumbíu hafa hafið rannsókn á því.
Myndir af vettvangi
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.