flugfréttir
Cathay Pacific ætlar að draga úr losun kolefna með lífrænu eldsneyti
Flugvélar Cathay Pacific á flugvellinum í Hong Kong
Cathay Pacific ætlar sér að skipta yfir í lífrænt eldsneyti á nokkrum sérvöldum langflugsleiðum í þeim tilgangi að draga úr losun kolefna út í andrúmsloftið og gera flugið vistvænna.
Cathay Pacific mun notast við lífrænt eldsneyti sem er unnið úr endurnýtanlegum úrgangi úr landfyllingu þar
sem rusl hefur verið urðað og verður því blandað saman við hefðbundið eldsneyti og sett á þær vélar sem
fljúga frá Bandaríkjunum til Chek Lap Kok flugvallarins í Hong Kong.
Cathay Pacific ætlar sér með þessu að ná að draga úr kolefanlosum um allt að 80 prósent en félagið hefur gert samning
við fyrirtækið Fulcrum BioEnergy sem sérhæfir sig í að umbreyta úrgangi yfir í þotueldsneyti.
Fyrsta flug Cathay Pacific með lífrænu eldsneyti mun hefjast árið 2019 og mun félagið aðeins fyrst um sinn nota eldsneytið á leiðinni frá Bandaríkjunum, þar sem eldsneytið er framleitt, til Hong Kong.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.