flugfréttir
Norwegian verður fyrsta flugfélagið til að fá Boeing 737 MAX afhenta
- Southwest Airlines fær sínar tveimur mánuðum síðar
Ein af Boeing 737 MAX 8 tilraunaþotunum. Mynd tekin þann 15. janúar
Norwegian hefur verið útnefnt það flugfélag sem verður fyrst allra flugfélaga til að fá Boeing 737 MAX 8 þotuna afhenta í stað Southwest Airlines.
Norwegian mun fá Boeing 737 MAX afhenta í maí í vor, fyrst allra flugfélaga, en Southwest Airlines mun fá sitt
eintak afhent í júlí í sumar.
Norwegian mun einnig verða fyrsta flugfélagið til að hefja áætlunarflug með Boeing 737 MAX í júní en þrír
mánuðir munu líða frá því Southwest Airlines mun fá sína fyrstu Boeing 737 MAX afhenta í júlí þar til félagið mun
byrja að fljúga vélunum í október.
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX í litum Norwegian
Fyrstu Boeing 737 MAX 8 þotur Norwegian munu verða skráðar í Írlandi en þær munu fljúga yfir Atlantshafið til áfangastaða á borð við Boston á austurströndinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.