flugfréttir
14 kíló af kókaíni fundust í nefhluta á Boeing 757 eftir flug frá Kólumbíu
Boeing 757 þota American Airlines í viðhaldsskýli
Fíkniefni fundust sl. sunnudagskvöld falin inni í rými í nefhluta á farþegaþotu af gerðinni Boeing 757 hjá American Airlines skömmu eftir að vélin hafði flogið til Bandaríkjanna frá Kólumbíu.
Vélin var að gangast undir viðhaldsskoðun í Tulsa í Oklahoma þegar flugvirki gaf því gaum að skipt hafði verið um einangrun á einum stað innan í rými þar sem rafkerfi vélarinnar er staðsett, nálægt nefhjólabúnaði vélarinnar.
Flugvirkinn fannst eitthvað athugavert við að einangrunin virtist ný og ákvað hann að kíkjá á bakvið og kom þá
í ljós að þar var búið að fela pakkningar sem innihéldu 14 kíló af kókaíni.
Um sjö pakkingar var að ræða sem vógu tvö kíló hver um sig og er talið að andvirði efnisins á götunni í Ameríku
sé metið á 23 milljónir króna.
Boeing 757 þotan hafði flogið frá Bogóta til Miami og var ferjuð þaðan til Tulsa til að fara í skoðun þar sem ekki var laus tími fyrir hana í Miami.
Fíkniefnadeild lögreglunnar í Bandaríkjunum var kölluð á staðinn og hefur hún hafið rannsókn á málinu.
Mynd af efnunum sem voru gerð upptæk:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.