flugfréttir

LOT Polish Airlines ætlar að taka á leigu þrjár Boeing 787-9

- Stefna á 17 Dreamliner-þotur fyrir árið 2020

31. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:00

Boeing 787-8 þota LOT Polish Airlines

Pólska flugfélagið LOT Polish Airlines ætlar að taka á leigu þrjár Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9 frá flugvélaleigunni Aviation Capital Group.

LOT Polish Airlines mun fá fyrstu vélina afhenta í mars árið 2018 og verður hún notuð í áætlunarflugi til John F. Kennedy flugvallarins í New York og til Chicago en félagið pólska hefur nú þegar fengið sex Boeing 787-8 þotur afhentar af þeim átta sem félagið pantaði.

Félagið mun því koma til með að hafa 11 Dreamliner-vélar í flota sínum þegar allar vélarnar hafa verið afhentar.

Fjögur ár eru síðan að LOT Polish Airlines fékk sína fyrstu Boeing 787-8 þotu afhenta en félagið var það fyrsta í Evrópu til að fá Dreamliner-vélina.

„Með Boeing 787-9 mun verða brotið blað í sögu félagsins en vélin mun gefa okkur tækifæri á því að auka sætaframboð á fjölförnustu flugleiðunum auk þess sem við getum bætt við nýjum leiðum“, segir Rafal Milczarski, framkvæmdarstjóri féalgsins.

LOT vonast til þess að geta einnig notað Boeing 787-9 í áætlunarflugi til Asíu en í september í fyrra sagði félagið að til stæði að tvöfalda farþegafjölda félagsins frá 4,3 milljónum upp í 10 milljónir farþega árið 2020.

Þá er einnig stefnt að því að fjölga Dreamliner-vélunum upp í 17 þotur á næstu þremur árum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga