flugfréttir
Air Canada mun fljúga til Íslands
- Fljúga til Keflavíkur frá Toronto og Montréal í sumar
Air Canada Rouge mun fljúga til Íslands með Airbus A319 þotum
Kanadíska flugfélagið Air Canada tilkynnti í dag að það myndi hefja beint flug til Íslands í sumar frá tveimur borgum í Kanada.
Félagið mun fljúga hingað daglega til Keflavíkurflugvallar bæði frá Montréal og frá Toronto en frá Montréal verður flogið
þrisvar í viku en fjórum sinnum í viku frá Toronto.
Fyrsta flugið verður flogið þann 21. júní frá Toronto og verður flogið frá þeirri borgi fram til 8. október
í haust en flug milli Keflavíkur og Montreal hefst tveimur dögum síðar, þann 23. júní, og verður flogið
fram til 9. október.
Það verður dótturfélagið, Air Canada Rouge, sem mun fljúga Íslandsflugið og verður flogið
með þotum af gerðinni Airbus A319 sem taka 136 farþega í sæti.
Toronto-áætlunin
Flogið verður frá Toronto til Keflavíkur á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og
laugardögum með flugi AC1970 og er brottför klukkan 21:00 og er lent
í Keflavík morguninn eftir klukkan 6:50.
Til baka er flogið frá Keflavík að morgni þriðjudags, fimmtudags, föstudags og sunnudags (flug AC1971) klukkan 08:30 og lent í Toronto klukkan 10:20.
Montreal-áætlunin
Flogið verður frá Montréal til Keflavíkur á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum með flugi AC1972
og er brottför klukkan 21:35 og er lent
í Keflavík morguninn eftir klukkan 6:50.
Til baka er flogið frá Keflavík að morgni miðvikudags, laugardags og mánudags (flug AC1973) klukkan
08:30 og lent í Montréal klukkan 09:45.
Um Air Canada
Air Canada er stærsta flugfélag Kanada og flýgur félagið til yfir 200 áfangastaða í sex heimsálfum
en til 350 áfangastaða ef dótturfélögin eru talin með.
Um 45 milljónir farþega flugu með félaginu í fyrra um borð í þeim 170 flugvélum sem félagið
hefur í flota sínum.
Þess má geta að Air Canada er eina flugfélagið í Norður-Ameríku sem hefur fjórar stjörnur í einkunn
samkvæmt matsfyrirtækinu SkyTrax.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.