flugfréttir

Yfirflugstjóri Air India neitaði nokkrum sinnum áfengisprófi

- Félag indverskra atvinnuflugmanna grípur til aðgerða

1. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 22:36

Dreamliner-þota Air India

Yfirflugstjóri hjá Air India situr nú í súpunni fyrir að hafa nokkrum sinnum neitað því að gangast undir áfengispróf áður en hann fór um borð í farþegaflug en um nokkrar flugferðir er að ræða.

Félag indverskra atvinnuflugmanna hefur sent bréf með formlegri kvörtun til flugmálayfirvalda á Indlandi þar sem þeir lýsa yfir áhyggju sínum varðandi málið.

Í bréfinu segir m.a. að þeir hafi orðið varir við að einn yfirmaður félagsins, sem situr í stjórn Air India, og er einnig flugstjóri hjá félaginu hafi neitað að gangast undir reglubundið áfengispróf og hafi með því stofnað öryggi farþega og áhafnarinnar í hættu með að fljúga þar sem óljós hvort hann hafi verið allsgáður.

Flugmannafélagið hvetur indversk flugmálayfirvöld til þess að hefja rannsókn á atvikinu og þá er mælt með því að strangari reglur verði teknar upp varðandi áfengispróf flugmanna til að sjá til þess að flugmaður geti ekki flogið undir áhrifum áfengis.

Heimildarmaður innan Air India segir að fjögurra manna nefnd hafi verið stofnuð til þess að rannsaka málið en á meðan ætla nokkrir flugmenn hjá félaginu að veita flugmálayfirvöldum m.a. upptökur úr myndvélum sem staðsettar eru í starfsmannaherbergi þar sem flugmenn koma saman til að undirbúa sig fyrir flugferð sem gæti mögulega sýnt í hvaða ástandi hann var í þau skipti sem hann neitaði að gangast undir próf.

Þá ætla einhverjir flugmenn einnig að sjá til þess að ekki verði hægt að koma sér undan því að taka áfengispróf og uppræta þá sem eru meðsekir í slíkum málum með því að hylma yfir slík brot.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga