flugfréttir

Boeing 777-300ER frá SWISS lenti í Iqaluit í gær á einum hreyfli

- Bilun í hreyfli á leið frá Zurich til Los Angeles

2. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:06

Boeing 777-300ER þota SWISS í lendingu í gær á flugvellinum í Iqaluit á Baffinseyju

Boeing 777-300Er frá SWISS International Air Lines þurfti í gær að lenda í bænum Iqaluit á Baffinseyju á leið sinni frá Zurich til Los Angeles vegna vandamála í öðrum hreyfli vélarinnar.

Lendingin gekk vel en vélin náði ekki að yfirgefa brautina þar sem hún staðnæmdist og var vellinum lokað tímabundið á meðan vélin var dregin í burtu.

Vélin var í 32.000 feta hæð skammt vestur af Prince Charles eyju að nálgast Nunavut þegar flugmenn urðu varir við bilun í vinstri hreyfli vélarinnar sem er af gerðinni GE90.

Hreyfillinn slökkti sjálfkrafa á sér eins og hönnun hans gerir ráð fyrir og var óskað eftir leyfi til þess að lenda á flugvellinum í Iqaluit þar sem vélin lenti rúmri einni og hálfri klukkustund síðar.

Enn er verið að vinna að því að koma farþegum á leiðarenda en SWISS sendi m.a. í gær breiðþotu af gerðinni Airbus A330-300 frá New York JFK norður til Iqaluit til að sækja farþega og var þeim flogið til New York og þaðan áfram til Los Angeles með öðrum leiðum.

Hér að neðan má sjá myndband af lendingunni auka mynda sem teknar voru í Iqaluit eftir að vélin var lent en þess má geta að frostið í gær fór niður í -28°C gráðu en á meðan var 22 stiga hiti í Los Angeles.

Myndir:









Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga