flugfréttir

Finnair hefur flogið síðasta flugið með Airbus A340

- Síðasta flugið var flogið þann 31. janúar frá Tókýó til Helsinki

2. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:30

OH-LQE flaug síðasta Airbus A340-flugið hjá Finnair þann 31. janúar frá Tókýó til Helsinki

Finnair hefur tilkynnt að félagið hafi formlega hætt með Airbus A340 þoturnar í áætlunarflugi.

Síðasta flugið með A340-300 var flogið þann 31. janúar sl. frá Narita-flugvellinum í Tókýó til Helsinki en vélin sem flaug síðasta bar flugið skráninguna OH-LQE og var hún 8 ára gömul, smíðuð árið 2008.

Finnair hafði sjö Airbus A340-300 þotur í flota sínum en félagið fékk þá fyrstu afhenta árið 2006 og hafa þær því þjónað flugfélaginu finnska í tæp 11 ár.

Þrjár af Airbus A340 þotum Finnair verða sendar í brotajárn þar sem þær verða rifnar í varahluti en fjórar munu fá áframhaldandi líf í flota Air Belgium.

Hér að neðan má sjá þá liti sem fyrrverandi Airbus A340 þotur Finnair verða málaðar í en Air Belgium er nýtt flugfélag í Belgíu sem mun hefja flugrekstur á þessu ári en félagið á von á því að fá flugrekstarleyfi í mars eða í apríl.

Svona munu fjórar fyrrverandi Airbus A340 vélar Finnair koma til með að líta út







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga