flugfréttir
Qantas vill að nýr flugvöllur í Sydney verði fyrir lágfargjaldaflug
Tölvugerð mynd af nýja flugvellinum sem áætlað er að muni rísa vestur af Sydney
Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas, segir að nýr flugvöllur fyrir Sydney, sem fyrirhugað er að hefja framkvæmdir á, eigi að hans mati að vera lágfargjaldarflugvöllur.
Joyce segir að dóttufélagið Jetstar Airlines muni koma til með að hafa aðsetur á nýja flugvellinum í framtíðinni
á meðan Qantas verður áfram staðsett á Kingsford Smith flugvellinum.
„Þetta virkar vel fyrir London og það ætti að virka álíka vel fyrir okkur Ástrali“, segir Joyce sem ber saman
London Heathrow og Stansted sem lágfargjaldaflugvöll.
Stjórnvöld í Ástralíu samþykktu í desember leyfi fyrir framkvæmdum á nýjum flugvelli fyrir Sydney
sem mun koma til með að verða staðsettur vestur af borginni í úthverfi sem kallast Badgerys Creek.
Þar með lauk áratuga löngum deilum sem staðið hafa yfir í um 20 ár en aðrir stjórnmálamenn vildu
frekar sjá Kingsford Smith flugvöllinn gangast undir stækkun.
Sydney Airport Group, sem á og rekur Kingsford Smith flugvöllinn í Sydney, hefur fyrsta rétt
á því að sjá um rekstur vallarins en flugvöllurinn
verður tekinn í notkun í áföngum og er stefnt á að taka hann í notkun að hluta til um miðjan næsta áratug.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.