flugfréttir
Air France hættir við tvær síðustu A380 risaþoturnar
- Taka þrjár Airbus A350-900 þotur í staðinn
Airbus A380 þota Air France
Airbus hefur misst pantanir í fleiri A380 risaþotur en Air France hefur staðfest að félagið muni ekki taka við þeim tveimur vélum sem átti eftir að afhenda.
Þess í stað ætlar Air France að taka þrjár Airbus A350-900 vélar en flugfélagið franska
er nú þegar stór viðskiptavinur er kemur að A350 en og verður sú fyrsta afhent á þessu ári.
Air France hafði áður lýst því yfir að til stæði að taka ekki við fleiri Airbus A380 risaþotum
þar sem rekstrarumhverfið hefur breyst en félagið hefur nú þegar fengið tíu A380 vélar afhentar
frá upphafi.
Air France segir að Airbus A350-900 henti betur fyrir leiðarkerfi félagsins heldur en A380
en félagið hafði áður pantað 28 eintök af þeirri vél.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.