flugfréttir
IndiGo sakað um svindl við öryggisþjálfun áhafna
- Flugmálayfirvöld hafa svipt félaginu leyfi fyrir þjálfun í öryggismálum
Áhöfn hjá indverska flugfélaginu IndiGo Airlines
Flugmálayfirvöld á Indlandi hafa svipt indverska flugfélaginu IndiGo réttindum sínum til þess að þjálfa flugfreyjur og flugþjóða eftir að í ljós hefur komið að átt hafði verið við niðurstöður um frammistöðu þeirra í þjálfun á öryggisatriðum.
Flugmálayfirvöld á Indlandi gerðu úttekt á þjálfun áhafna og kom í ljós að á 7 til 8 mánaða tímabili
þá höfðu bæði flugfreyjur, flugþjónar og flugmenn verið skráð með einkunn upp á 96 til 98% í þjálfun í öryggismálum sem þótt grunsamlegur árangur.
Samkvæmt þjálfunaráætlun þurfa flugfreyjur og flugþjónar að gangast undir próf sem stendur
yfir í sex daga þar sem farið er yfir ýmiss öryggisatriði á borð við viðbrögð gagnvart
flugráni eða sprengjuhótun.
Airbus A320 þota IndiGo
Í ljós kom að öryggisnámskeiðunum hafði verið breytt hjá flugfélaginu frá því að vera
próf sem fór m.a. fram á tölvutæku formi yfir í skrifleg próf en IndiGo hafði ekki leyfi fyrir
þeim breytingum frá flugmálayfirvöldum.
Þegar í ljós kom að 90% áhafna náðu prófunum vakti það upp grunsemdir þar sem hlutfallið
var hærra en meðaltalið hjá öðrum indverskum flugfélögum.
Gríðarleg umsvif hafa verið sl. ár hjá IndiGo sem er orðið stærsta flugfélag Indlands
er kemur að fjölda véla og þarf flugfélagið á nýjum flugmönnum og áhafnarmeðlimum á að halda í hverjum mánuði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.