flugfréttir

„Ruglingslegt að hafa tvo flugvelli fyrir Berlín“

- Forstjóri Lufthansa á móti því að Tegel-flugvöllurinn verði starfræktur áfram

6. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 09:41

Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa

Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa, vill að Berlín verði aðeins með einn flugvöll og vill hann ekki að Tegel-flugvellinum verði starfræktur áfram eftir að Brandenburg-flugvöllurinn verður tekinn í notkun sem á einnig að leysa af hólmi Schönefeld-flugvöllinn.

Spohr sagði í nýlegu viðtali að það skapar rugling að vera með tvo flugvelli fyrir eina borg bæði fyrir flugreksturinn og farþega - „Reynslan hefur sýnt að það er hagkvæmara fyrir alla ef flogið er frá einum stað - Annars eru allir að spyrja sig: „Hver flýgur frá hvaða flugvelli?“.

Lufthansa hefur tapað milljörðum á þeirri seinkun sem orðið hefur á Brandenburg-flugvellinum sem átti upphaflega að verða tekinn í notkun árið 2010 og það á einnig við önnur flugfélög á borð við Air Berlin.

Fjölmargir berjast fyrir því að Tegel-flugvellinum verði haldið opnum um ókomna framtíð en samtökin „Berlin Needs Tegel“ segja að Brandenburg-flugvöllurinn muni ekki ráða við þá 32,9 milljónir sem fara árlega um Tegel og Schönefeld flugvellina en Brandenburg mun geta tekið á móti 27 milljónum farþega árlega þegar hann mun opna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga