flugfréttir
Stefna á jómfrúarflug C919 þotunnar fyrir sumarið
Alls hafa um 23 flugfélög pantað 570 eintök af C919 þotunni frá COMAC
Kínverski flugvélaframleiðandinn COMAC stefnir á að nýja C919 farþegaþotan muni fljúga jómfrúarflugið á fyrri helming þessa árs og jafnvel strax með vorinu.
Verið er að leggja lokahönd á tengja ýmis kerfi um borð
auk búnaðar til tilraunaflugsins og hafa nokkrar tilraunir nú þegar farið fram á ýmsum búnaði
sem nauðsynlegt er að framkvæma áður en vélinni verður flogið sitt fyrsta flug.
Í nóvember sl. fóru fram tilraunir með LEAP-1C hreyfilinn sem hefur nú þegar fengið vottun
frá flugmálayfirvöldum bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum.
Þá fóru fram akstursprófanir með fyrstu C919 vélinni rétt fyrir áramót og er nú komið að
þeim tímapunkti að hægt verður að fljúga vélinni í fyrsta sinn.
China Eastern Airlines verður fyrsta flugfélagið til að taka við fyrsta eintakinu en COMAC
hefur nú fengið pantanir í 570 þotur frá 23 flugfélögum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.