flugfréttir
205.000 farþegar flugu með Icelandair í janúar
- Tæp tvöföld farþegaaukning á 4 árum
Hekla Aurora (TF-FIU) í flugtaki á flugvellinum í Boston þann 28. janúar sl.
205 þúsund farþegar flugu með Icelandair í seinasta mánuði sem er 18 prósenta aukning frá janúar 2016 þegar 173.000 flugu með félaginu.
Þetta er í fyrsta sinn sem farþegafjöldinn hjá Icelandair fer yfir 200.000 farþega í janúarmánuði og er um tvöföldun að ræða á aðeins 4 árum en í janúar 2013 flugu 109.000 farþegar með félaginu og 93.000 í janúar árið 2012.
Um 22% fleiri sæti voru í boði í janúar í ár samanborið við sama mánuð í fyrra og sætanýtingin
mældist 73,6 prósent en í janúar 2016 var hún 74,3 prósent.
Farþegar sem flugu með Flugfélagi Íslands í innanlandsflugi og til Grænlands voru um 20 þúsund og fækkaði um 1% milli ára.
Framboð í janúar var 24% meira en í janúar á síðasta ári og skýrist það af flugi til Aberdeen sem flogið er í samstarfi við Icelandair með Bombardier
Q400 vélunum en það flug hófst í mars 2016.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.