flugfréttir

Láta reyna á ríkisstjórn Trumps til að knésetja flóaflugfélögin

- American, United og Delta biðja um fund með nýjum utanríkisráðherra

7. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:19

Airbus A320 þota United Airlines í lendingu á flugvellinum í San Francisco og risaþota Emirates

Framkvæmdarstjórar þriggja stærstu flugfélaga Bandaríkjanna, United Airlines, Delta Air Lines og American Airlines, hafa skrifað bréf til nýkjörins utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Rex Tillerson, þar sem þeir láta reyna á ásakanir varðandi óheiðarlega styrki sem þeir telja að flugfélögin í miðausturlöndum, við Persaflóa, séu að þiggja frá löndum sínum.

Framkvæmdarstjórar flugfélaganna hafa beðið um fund með Tillerson, sem áður starfaði sem framkvæmdarstjóri ExxonMobil, en hann tók við stöðu utanríkisráðherra Bandaríkjanna þann 2. febrúar.

Doug Parker, framkvæmdarstjóri United Airlines, Edward Bastian hjá Delta Air Lines og Oscar Munoz hjá American Airlines, telja að sl. ár hafi flugfélögin þrjú, Emirates, Qatar Airways og Etihad Airways, þegið milljarða í styrki frá árinu 2004 sem þeir segja hafi skaðleg áhrif á bandarísku flugfélögin.

Rex Tillerson, nýkjörinn utanríkisráðherra Bandaríkjanna

Framkvæmdarstjóranir þrír segja að sökum þessa þá sé búið að eyðileggja heiðarlega samkeppni fyrir bandarísku félögunum í flugi milli Bandaríkjanna og Miðausturlanda.

Í bréfi sem amerísku flugfélögin sendu í sameiningu til Tillerson kemur fram að af þeim 120 lofthelgissáttmálum sem eru í gildi milli Bandaríkjanna og annarra landa þá séu aðeins tveir sáttmáli sem hefur skapað vandræði og séu það sáttmálarnir milli sameinuðu arabísku furstadæmanna og Qatar.

Ríkisstjórn Obama hafði þegar fengið þetta mál inn á borð til sín en sú stjórn sá ekki ástæðu til að aðhafast eitthvað frekar í málinu.

United, Delta og American segja þessi lönd vera að misnota sáttmálan um flug milli þeirra landa og Bandaríkjanna með því að þiggja styrki frá löndum sínum sem gerir það að verkum að bandarísku flugfélögin ná ekki að keppa við þau er kemur að þægindum, markaðsmálum og framboði.

Þetta er ekki eina málið sem er í gangi í fluginu vestanhafs því félag bandarískra atvinnuflugmanna hafa einnig beðið nýjan samgönguráðherra Bandaríkjanna um að enduskoða sáttmála sem var staðfestur í desember varðandi loftferðasamning sem gerir norska flugfélaginu Norwegian núna kleift að hefja innreið sína af fullum krafti til Ameríku.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga