flugfréttir
EASA segir ekki rétt að Írak hafi verið tekið af bannlista
Boeing 737-800 þota Iraqi Airways
Samgönguöryggisnefnd Evrópu (EASA) þvertekur fyrir ummæli sem fram komu í íröskum fjölmiðlum um að Iraqi Airways hafi verið fjarlægt af þeim lista sem heldur utan um þau flugfélög sem fá ekki að fljúga til Evrópu.
Kadhim al-Hamami, samgönguráðherra Íraks, sagði á blaðamannafundi í Baghdad í seinustu
viku að Iraqi Airways sé ekki lengur á bannlista Evrópu í kjölfar skoðunar sem fram fór
á öryggismálum innan félagsins.
EASA segir að engin breyting hafi verið gerð á bannlistanum frá því í desember sl. og sé
óbreytt staða á þeim flugfélögum sem fá ekki að fljúga inn í evrópska lofthelgi.
Iraqi Airways var bannað að fljúga til Evrópu árið 2015 þar sem félagið náði ekki að uppfylla
öryggiskröfur í samræmi við staðla Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO).
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.