flugfréttir
Eldsneytisskortur í kjölfars áreksturs við fugl í flugtaki
Airbus A319 þota Air India á flugvellinum í Jaipur
Farþegaþota frá Air India af gerðinni Airbus A319 þurfti að lenda í borginni Jaipur á leið sinni frá Bhopal til Delhi í gær sökum eldsneytisskorts en skömmu eftir flugtak hafði vélin flogið á fugl í flugtakinu.
Fram kemur að flugmennirnir höfðu ekki orðið varir við að fugl hefði flogið í veg fyrir vélina
en þeir héldu fluginu áfram þar sem aldrei kom upp nein viðvörun um að eitthvað
væri í ólagi og öll stjórntæki sýndu fram á að allt var með eðlilegum hætti í klifrinu.
Nokkrum mínútum síðar er vélin var komin upp í 32.000 fet ákváðu flugmennirnir
að lenda í borginni Jaipur vegna óveðurs í Delhi.
Hinsvegar þegar vélin var í aðflugi að flugvellinum í Jaipur tilkynntu flugmennirnir að
eldsneytismagnið á tönkum vélarinnar væru orðið óvenju lítið.
Vélin lenti skömmu síðar en við nánari skoðum kom í ljós eldsneytisleki frá öðrum
CFM56 hreyfli vélarinnar.
Flugvallaryfirvöld í Jaipur sögðu að flugmennirnir hefðu aldrei minnst á árekstur við
fugl og höfðu þeir aðeins farið fram á forgangslendingu þar sem vélin var orðin tæp
á eldsneyti.
Það var ekki fyrr en vélin var komin undir hendur flugvirkja að þeir ráku augun í ummerki
á hjólastelli vélarinnar sem benti til þess að hún hefði flogið á fugl.
Flugfélagið vinnur nú að því að rannsaka hvers vegna flugmennirnir urðu ekki varir við
áreksturinn við fuglinn en ekki hefur komið fram hvort að tengsl séu á milli árekstursins
og eldsneytislekans.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.