flugfréttir

Ofurskálin setti mikið álag á flugumferðarstjóra í Houston

- 1.600 aukaflugferðir um Houston vegna Supebowl

7. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 09:18

Flugumferðarstjóri á vakt í Houston sl. helgi

Það var heldur betur nóg að gera hjá flugumferðarstjórum í Houston í Texas sl. helgi og sérstaklega á sunnudag þegar Ofurskálin fór fram í borginni sem er einn stærsti árlegi íþróttaviðburðurinn vestanhafs.

Alls fóru 1,600 aukalegar flugferðir um flugumferðarsvæðið í Houston í tengslum við úrslitaleikinn en meðal þeirra var fjöldinn allur af einkaþotum auk eftirlitsflugvéla, þyrlna og leiguflugs.

Það tók um eitt ár að undirbúa þessa helgi en flugvélar fóru að streyma til Houston strax á fimmtudeginum en einn flugumferðarstjóri í Houston, sem var á vakt um helgina, sagði að þetta væri eiginlega þeirra „eigin ofurskál“ þegar kemur að því að leiðbeina flugvélum.

Sjaldan ef ekki aldrei hafa eins margar flugvélar farið um Houston

Að meðaltali fara um 2,500 flugvélar á dag um þá flugvelli sem þjóna Houston en 1,600 flugvélar bættust við vegna Ofurskálarinnar.

Þá voru aðrir flugvellir í Bandaríkjunum sem þurftu einnig að undirbúa sig og breyta þurfti einhverjum hefðbundnum flugleiðum til þess að hliðra til fyrir helgina.

Clay Matheny, einn af þeim flugumferðarstjórum sem voru á vakt, sagði að þetta væri án efa einn af annasömustu dögum sem flugumferðarstjórar í Houston hafa orðið vitni að en þrátt fyrir það þá urðu farþegarnir sjálfir ekki varir við neinar breytingar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga