flugfréttir
Eurowings kynnir flugpassa sem inniheldur 10 flugferðir
- Virkar svipað og klippikort í lestar
Niðurstöður úr fyrstu tilraunum með flugpassann munu liggja fyrir í vor
Þýska lágfargjaldafélagið Eurowings hóf í gær tilraunir með einskonar flugpassa sem virkar svipað og klippikort í lestar þar sem farþegar geta keypt kort með 10 ferðum.
Farþegar geta valið um þrjú mismunandi kort sem eru sérstaklega hönnuð fyrir
þrjá hópa - Stúdentapassinn er ætlaður námsmönnum sem geta flogið 10 ferðir fyrir 60.400 krónur, borgarpassinn („city pass“), sem kostar 84.600 krónur, er ætlaður þeim sem ferðast reglulega milli evrópskra borga og „Business Pass“ er ætlaður viðskiptafarþegum
sem kjósa sveiganlegan brottfarartíma en hann kostar 181.000 krónur.
Markaðsstjóri Eurowings segir að mjög mikill áhugi sé fyrir „flugpassanum“ sem verður
til að byrja með aðeins fáanlegur í takmörkuðu upplagi á meðan prófanir standa yfir
en fyrstu tilraunirnar munu ganga út á að sjá hver viðbrögðin verða hjá farþegum.
Eurowings, sem er dótturfélag Lufthansa, á von á því að fyrstu niðurstöður úr prófunum
muni liggja fyrir í vor og mun síðar koma í ljós hvort að þessi þjónusta sé komin til að vera.
Á vefsíðunni www.flightpass.de má fá upplýsingar um flugpassann
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.