flugfréttir
Þota frá British Airways rann út af braut í Billund
Airbus A319 vélin fór út af brautinni með öll hjólin
Farþegaþota frá British Airways af gerðinni Airbus A319 fór út af flugbraut á flugvellinum í Billund á Jótlandi í gær eftir flug frá London Heathrow.
Vélin var nýbúin að lenda og var að yfirgefa brautina í átt að flugstöðinni þegar hún fór
út af steyptu yfirlagi og endaði með öll hjólin út á graslendi.
67 farþegar voru um borð og sakaði engann og var þeim hleypt úr vélinni niður um stigabíl.
Ekki er vitað hvað olli því að vélin fór út af braut en töluverður snjór var á brautinni
er atvikið átti sér stað.
British Airways sendi aðra véli til Billund
til að sækja þá farþega sem áttu bókað með vélinni til baka til London.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.