flugfréttir

Qatar Airways hættir við stofnun dótturfélagsins Al Maha

- Voru búnir að fá fjórar nýjar A320 frá Airbus fyrir reksturinn

8. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:35

Ein af Airbus A320 vélunum sem áttu að fljúga fyrir Al Maha

Qatar Airways hefur hætt við áform sín um að stofna nýtt dótturflugfélag sem átti að sinna innanlandsflugi í Sádí-Arabíu en félagið, Al Maha Airways, var þegar búið að fá fjórar nýjar farþegaþotur frá Airbus af gerðinni Airbus A320.

Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, hefur staðfest það að félagið hafi sett verkefnið á hilluna en ástæðan er sögð vera sökum þess hversu langan tíma það hefur tekið að fá tilskilin leyfi frá stjórnvöldum í Sádí-Arabíu.

„Ég er mjög vonsvikinn yfir því að við munum ekki geta sett nýja flugfélagið á laggirnar og vona ég að við munum fá annað tækifæri síðar til þess að þjóna sádí-arabísku þjóðinni“, segir Al Baker.

Al Maha Airways var annað þeirra tveggja erlendu flugfélaga sem voru valin árið 2012 af stjórnvöldum í Sádí-Arabíu til að hefja innanlandsflug í landinu en á meðan hitt flugfélagið, SaudiGulf, hefur nú þegar hafið starfsemi sín þá hefur það setið á hakanum að veita Al Maha formlegt leyfi til að hefja áætlunarflug.

Qatar Airways tók við fjórum, nýjum Airbus A320 þotum í apríl árið 2015 en vélarnar hafa aldrei flogið áætlunarflug fyrir Al Maha Airways

Upphaflega stóð til að Al Maha myndi byrja að fljúga fyrir lok ársins 2014 en því var frestað til 2016 en nú hefur verið tilkynnt að hætt hafi verið við öll áform um stofnun félagsins.

Al Maha Airways átti að hefja áætunarflug með 10 Airbus A320 þotum sem áttu að fljúga milli borganna Jeddah, Riyadh, Damman, Medina, Abha, Qassim, Doha og Dubai.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga